Kynningarfundur fyrir foreldra/forráðamenn verðandi 1. bekkinga í Gerðaskóla, veturinn 2026-2026 verður haldinn föstudaginn 22. maí kl.08:30 – 09:00 á sal skólans.
Foreldrar/forráðamenn og börn mæta við aðalinngang kl. 8:30. Börnin fara í kennslustundir, borða nesti sem þau koma með að heiman og kynnast frímínútum. Vorskóla lýkur kl. 10:30.
Foreldrar og forráðamenn sækja um skólavist fyrir börn sín í gegnum island.is.
Foreldrum eða forráðamönnum sem ekki hafa rafræn skilríki er bent á að hafa samband við skrifstofu þess grunnskóla sem sótt er um í þar sem veitt er aðstoð við að fylla út og skila umsókn.
Nemendur með lögheimili í Sandgerði sækja um í Sandgerðisskóla og nemendur með lögheimili í Garði sækja um í Gerðaskóla.
Búið er að opna fyrir skráningu á sumarfrístund fyrir skóláárið 2026-2027.
Skóladagatal 2026 - 2027