Gerðaskóli býður upp á sérstaka lestrarþjálfun og málörvun fyrir nemendur í 2. – 4. bekk sem þurfa aukna æfingu í lestri, framburði hljóða og orðaforða. Um er að ræða verkefnið „Lestrarvinir" þar sem nemendur fá persónulega aðstoð við lestur og málörvun. Lestrarvinir eru skipulagðir að loknum hefðbundnum skóladegi og eru nemendur ýmist einu sinni eða tvisvar í viku í þjálfuninni.
Markmið lestrarvina er að
- styðja við lestrarþjálfun heima og í skólanum
- styrkja lestrarfærni og framburð málhljóða
- efla orðaforða og máltilfinningu
- auka sjálfstraust við notkun íslenskunnar
Lestrarvinir eru fyrir nemendur sem þurfa auka lestrarþjálfun t.d. til þess að ná viðmiði, nemendur með framburðarerfiðleika (miðað er við niðurstöður skimunar talmeinafræings í 1. bekk) og nemendur sem þurfa að efla orðaforða á íslensku. Mikil áhersla er lögð á að lestrarvinir séu skemmtileg og góð upplifun fyrir nemendur til þess að styrkja jákvæða tengingu við lestur. Lestraræfingar eru settar upp í formi leikja og í hverjum tíma eru spiluð margs konar orðaforðaspil. Til þess að ýta undir jákvæða upplifun nemenda er þjálfunin sniðin að þeirra þörfum. Þar sem lestrarvinir fara fram að lokinni kennslu þarf upplýst samþykkir foreldra eða forráðamanna að liggja fyrir áður en nemandi getur tekið þátt í Lestrarvinum.