Sumarfrístund 2026

Sumarfrístund fyrir börn fædd 2020

Sumarfrístund fyrir börn fædd árið 2020, sem hefja nám í 1. bekk haustið 2026, opnar mánudaginn 10. ágúst og verður starfrækt bæði í Gerðaskóla og Sandgerðisskóla. Frístundaheimilin verða opin frá 10. ágúst til skólasetningar og er ætluð tilvonandi 1. bekkingum. Markmið sumarfrístundar eru m.a. að brúa bilið milli leik- og grunnskóla, að börnin fái tækifæri til að kynnast sínum skóla og nærumhverfi hans með það að leiðarljósi að auka öryggi og vellíðan við upphaf grunnskólagöngunnar. Skráning fer fram í gegnum vala.is, mikilvægt að velja vetur og velja tímabil sumarfrístund 2026 en þessi skráning er óháð almennri skráningu í frístundaheimili eftir að skólastarf hefst. Mikilvægt er að skrá börnin í síðasta lagi fyrir 5. ágúst.

Opnunartími er frá kl. 09:00 – 15:00* og er hádegismatur og síðdegisnesti innifalinn.

Opið frá 12:00-15:00 18. ágúst vegna starfsdags grunnskólans ekki hádegismatur þann daginn.

Gjaldskrá fyrir tímabilið 10. – 21. ágúst 2026

Frístund í 10 daga frá kl. 09:00 – 15:00 og verð 24.900 kr.