Skrifstofa Gerðaskóla hefur opnað eftir sumarleyfi.
Ef tilkynna þarf breytingar, sækja um skólavist eða hafa samband við skólann er hægt að senda tölvupóst á gerdaskoli@gerdaskoli.is eða finna nánari upplýsingar á heimasíðunni www.gerdaskoli.is. Símanúmer skólans er 425-3050.
Sumarfrístund fyrir börn fædd árið 2020, sem hefja skólagöngu í 1. bekk í haust, opnar mánudaginn 10. ágúst. Skráning fer fram á vala.is. en skráningarfrestur rennur út klukkan 12:00 þann 7. ágúst.
Smellið hér til að skoða skóladagatal skólaársins 2026–2027.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur og hefja nýtt og spennandi skólaár!