Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun fyrir svæðið. Neyðarstjórn sveitarfélagsins hefur farið yfir stöðuna. Skólastarf fer fram að svo stöddu, nema annað sé sérstaklega tilkynnt. Forsjáraðilar eru eindregið hvattir til að meta hvort aðstæður séu öruggar fyrir börn að komast í og úr skóla. Fylgja skal börnum inn og út úr skólabygggingunni til að tryggja öryggi, sérstaklega með hliðsjón af veðri, færð og aðstæðum í nærumhverfi. Upplýsingar verða uppfærðar ef forsendur breytast.
Meðfylgjandi er frétt af heimasíðu Suðurnesjabæjar
https://www.sudurnesjabaer.is/is/moya/news/ovedur-i-adsigi-1/2