Umhverfishreinsun - svæði í fóstur

Gerðaskóli tók þátt í Stóra plokkdeginum í lok maí með því að hreinsa skólalóðina og nærumhverfið. Hreinsunin var skipulögð með þeim hætti að hver árgangur fékk úthlutað ákveðnu svæði við skólann sem þau tóku í fóstur. Nemendur sáu svo um að hreinsa svæðið, tína rusl, sópa og fleira. Hugmyndin er að bekkirnir taki að sér umhirðu og hreinsun svæðisins út skólaárið og fái svo úthlutað nyju svæði næsta skólaár. Þá er markmiðið einnig að stækka svæðin þannig að umhverfishreinsunin nái lengra út í nærumhverfi skólans. Nemendur stóðu sig afar vel í þessu verkefni og eiga hrós skilið fyrir sitt framlag. Við þökkum umhverfismiðstöð Suðurnesjabæjar sérstaklega fyrir hjálpina en við fengum lánaða kústa hjá þeim og höfðum aðgengi að körum fyrir ruslið sem safnaðist.

Hægt er að skoða myndir hér.