Umferðin

Í upphafi hvers skólaárs er nauðsynlegt að fara yfir þær umferðarreglur sem gilda fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur til að leggja grunn að auknu öryggi nemenda í umferðinni. Sérstaklega er mikilvægt að huga vel að yngstu nemendunum en við skulum ekki gleyma að fræða þau eldri líka.  

Starfsfólk Gerðaskóla hefur alla tíð látið sig varða öryggi nemenda í umferðinni. Mörg umferðarverkefni hafa verið unnin í skólanum í gegnum árin til að stuðla að bættri umferðarmenningu og auknu umferðaröryggi og ætlum við að halda því áfram.

Þáttur heimilanna er mikilvægur í umferðarfræðslu og forvörnum sem felst meðal annars í því að sýna gott fordæmi. Til að styðja heimilin í þeirri viðleitni, vill skólinn benda á nokkur atriði sem foreldrar/forráðamenn geta stuðst við þegar þeir vinna með börnum sínum að því að tryggja sem best öryggi þeirra í umferðinni.

 

  • Æfum leiðina í og úr skóla með barninu
  • Veljum öruggustu leiðina í skólann – ekki endilega þá stystu
  • Kennum barninu að fara yfir götu, með og án ljósastýringar
  • Sýnum hvernig við hegðum okkur ef farið er um vegi án gangbrauta og gangstétta
  • Verum sýnileg, notum endurskinsmerki
  • Notum hjólreiðahjálm, bæði börn og fullorðnir
  • Notum viðeigandi öryggisbúnað í bifreið, bæði börn og fullorðnir
  • Tökum tillit til annarra vegfarenda, sérstaklega í nánd við skóla
  • Förum eftir leiðbeiningum skólans um umferð á skólasvæðinu
  • Förum yfir öryggi í kringum rútur og strætó
  • Bendum börnunum á örugg leiksvæði

 

Það er von okkar að þessir punktar nýtist vel en við biðjum jafnframt um athugasemdir ef eitthvað mætti bæta.

Að lokum hvetjum við alla til að ganga eða hjóla í skólann : )