Svakalega lestrarkeppnin

Nemendur í 1. - 7. bekk tóku þátt í Svakalegu lestrarkeppninni sem lauk þann 6. október sl. Alls lásu nemendur í Gerðaskóla 67.659 mínútur á þremur vikum. Við héldum litla keppni eftir stigum innan skólans og var 1. bekkur með flestar mínútur á yngsta stigi en 6. bekkur bar sigur úr býtum á miðstigi, annað árið í röð. Þau fengu smá glaðning að launum í morgun. Allir bekkir fengu hrósskjal og plakat með samantekt yfir lesnar mínútur til þess að hengja upp í stofunum sínum. Nemendur og kennarar fylgdust svo með úrslitum keppninnar sem streymt var á Youtube. Nemendur í 1. - 7. bekk eiga hrós skilið fyrir þátttökuna í keppninni. Við hlökkum til að taka þátt að ári og leggjum að sjálfsögðu áherslu á lesturinn alla daga ársins. Áfram lestur!