Suðurnesjamót í Skólaskák 2023

Suðurnesjamót Grunnskóla í skólaskák fór fram þann 19. apríl í Stapaskóla Reykjanesbæ. Alls tóku 8 nemendur úr 7. - 10. bekk Gerðaskóla þátt og stóðu þeir sig með stakri prýði.

Mótinu var skipt upp í þrjá aldursflokka 1. – 4. bekkur, 5.- 7. bekkur og 8. – 10. Bekkur. Það var hann Thorarinn Edward Ryan sem bar sigur úr býtum á elsta stigi. Við óskum honum innilega til hamingju með árangurinn.

Hægt er að skoða fleiri myndir hér