Úrslit stóru upplestrarkeppninnar fóru fram í Gerðaskóla þriðjudaginn 10. mars síðastliðinn. Þar mættust þrír skólar, Gerðaskóli, Sandgerðisskóli og Stóru-Vogaskóli. Lið Gerðaskóla skipuðu þau Eva Kristín Einarsdóttir, Guðlaug Helga Sigurðardóttir, Hafþór Ingvi Brynjarsson, varamaður var Stefán Ingi Björnsson.
Úrslitin fóru þannig að í fyrsta sæti var María Ásmundsdóttir úr Stóru Vogaskóla, annað sæti hlaut Bergrún Embla Hlynsdóttir úr Sandgerðisskóla og í þriðja sæti var Eva Kristín Einarsdóttir úr Gerðaskóla.
Keppendurnir stóðu sig ótrúlega vel og komu fram af miklu öryggi. Við erum mjög stolt af þessum flotta árangri. Til hamingju Gerðaskóli!
Hægt er að skoða myndir hér.