Stóra upplestrarkeppnin 2024 – fulltrúar Gerðaskóla

Nemendur í 7. bekk tóku þátt í upplestrarkeppni innan bekkjarins þar sem dómnefnd valdi þrjá aðalmenn og einn varamann í lið Gerðaskóla. Það voru Hjörtur Páll Davíðsson, Magnús Máni Guðnason, Sóldís Rósana Almarsdóttir og Ásta Margrét Arinbjarnardóttir sem skipa lið Gerðaskóla að þessu sinni. Nemendur stóðu sig allir með stakri prýði og höfðu greinilega lagt mikinn metnað í æfingar, upplestur og framkomu.

Gerðaskóli er í samstarfi við Grunnskóla Grindavíkur, Sandgerðisskóla og Stóru-Vogaskóla um keppnina en að þessu sinni er Sandgerðisskóli í hlutverki gestgjafa og verður keppnin haldin þann 18. apríl næstkomandi.

Við óskum fulltrúum Gerðaskóla innilega til hamingju með árangurinn.