Það er alltaf sérstakt þegar góðir starfsmenn kveðja skólann okkar og nú er komið að því að kveðja fjóra einstaklinga sem hafa auðgað skólastarfið með fagmennsku sinni, elju og góðri nærveru.
Árni Guðnason húsvörður, Guðrún Filippía Stefánsdóttir kennari, Hólmfríður Magnúsdóttir skólaliði og Manfred Lemke kennari eru nú að fara á eftirlaun eftir farsælan starfsferil og mörg ár í þjónustu við nemendur og skólasamfélagið.
Við þökkum þeim innilega fyrir þeirra mikilvæga framlag til skólastarfsins í gegnum árin og óskum þeim alls hins besta á nýjum tímamótum.