Það er alltaf svolítið sérstakt þegar góðir kennarar kveðja skólann okkar, og núna er einmitt komið að því að við þurfum að kveðja tvær frábærar konur sem hafa auðgað skólastarfið okkar með fagmennsku sinni og nærveru.
Auður Vilhelmsdóttir íslenskukennari og Unnur Guðrún Knútsdóttir heimilisfræðikennari eru báðar að ljúka glæsilegum ferli í kennslu eftir mörg ár í skólaumhverfinu. En Auður hefur starfað í Gerðaskóla í 37 ár og Unnur Guðrún í 14 ár.
Við viljum þakka þessum frábæru kennurum fyrir þeirra framlag til skólastarfsins.