Skólaslit Gerðaskóla skólaárið 2025-2026

Skólaslit Gerðaskóla fóru fram með hátíðlegum hætti þann 5. júní þegar skólanum var slitið í 154. sinn.

Athöfnunum var skipt í tvennt. Nemendur í 1.–6. bekk komu saman í fyrri athöfn en nemendur í 7.–10. bekk í þeirri síðari. Aleksander Cielesz, nemandi í 6. bekk, lék á píanó við fyrri athöfnina. Við síðari athöfnina lék Eva Kristín Einarsdóttir, nemandi í 7. bekk, á gítar og söng lagið Hey There Delilah eftir Thomas John Higgenson.

Jón Ragnar Ástþórsson skólastjóri flutti ávarp þar sem hann fór yfir helstu viðburði og verkefni skólaársins. Hann ávarpaði einnig útskriftarárganginn og hvatti nemendur til að halda áfram að láta gott af sér leiða á komandi árum.

Að skólaslitum loknum buðu foreldrar útskriftarnemenda nemendum 10. bekkjar og starfsfólki skólans í veglegt kaffisamsæti.

Við athöfnina voru veittar ýmsar viðurkenningar. Veitt var viðurkenning fyrir Bragðaref, samþættingarverkefni 6. og 7. bekkjar, auk viðurkenninga fyrir list- og verkgreinar í 7. bekk. Nemendur í 8. og 9. bekk hlutu viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur. Þá fengu þrír nemendur í 10. bekk viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í bóklegum greinum og fjórir nemendur fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur í íþróttum, skólaíþróttum og sundi. Einnig gaf pólska sendiráðið nemendum sem hafa verið í pólskukennslu hjá Daríu bækur að gjöf.

Starfsfólk Gerðaskóla þakkar nemendum, foreldrum og forráðamönnum fyrir gott samstarf á liðnu skólaári og óskar öllum velfarnaðar í sumar. Útskriftarárgangi Gerðaskóla 2026 eru sendar innilegar hamingjuóskir með áfangann og bestu óskir um bjarta framtíð.

Hægt er að skoða myndir frá skólaslitum yngri hér og hjá eldri hér

Eftirtaldir nemendur hlutu viðurkenningu skólaárið 2025-2026:

Viðurkenningar í 6. -7. bekk:

Avii Vershynin og Írena Margrét Óladóttir – framúrskarnadi námsárangur í Bragðaref

Cezary Seweryn Stosio – framúrskarandi leikni í stærðfræði

Eva Kristín Einarsdóttir - framúrskarandi námsárangur í Bragðaref

Kvenfélagið Gefn veitti viðurkenningar til nemenda í 7.bekk sem voru að klára sitt síðasta ár í list- og verkgreinum:

Amanda Gabriela Skibinska í heimilisfræði

Andrea Ósk Henrisdóttir í textílmennt

Guðmundur Steinn Hannesson í smíði

Torfi Fric Jóhannesson og Þór Bergmann Vignisson í sjónlistum

Indíana Rós Heiðarsdóttir – fékk viðurkenningu frá Gerðaskóla fyrir áhugasemi og dugnað í textíl

Viðurkenningar frá Ásgarði skólaárið 2025 - 2026:

Alex Birtir Atlason – fyrir miklar framfarir í lestri

Sara Ósk Jóhannsdóttir– fyrir einstaka vandvirkni í vinnubröðum

Heiðrún Hanna – fyrir listræna sköpun

Viðurkenningar fyrir góðan námsárangur í 8. og 9. bekk:

Kristrún Erla Sigurðardóttir í 8. bekk

Þórey Edda Markúsdóttir í 9. bekk

Viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur í 10. bekk:

Emilía Hrönn Björnsdóttir – fyrir framúrskarandi námsárangur í bóklegum greinum

Hera Lind Róbertsdóttir – fyrir framúrsarandi námsárangur í bóklegum greinum

Hrafnkell Máni Másson – fyrir framúrsarandi námsárangur í bóklegum greinum

Viðurkenningar fyrir góðan árangur í skólaíþróttum og skólasundi í 10. bekk:

Bartosz Porzezinski – fyrir framúrskarandi námsárangur í íþróttum

Benedikt Ármann Vignisson – fyrir framúrskarandi námsárangur í sundi

Guðjón Hjörtur Eyjólfsson – fyrir framúrskarandi námsárangur í skólaíþróttum

Lilja María Hallvarðsdóttir – fyrir framúrskarandi námsárangur í skólaíþróttum