Skólaslit Gerðaskóla skólaárið 2024-2025

Skólaslit Gerðaskóla voru haldin með hátíðlegum brag þann 4. júní en þá var skólanum slitið í 153. skiptið. Árgöngum skólans var skipt í tvennt þar sem 1. – 6. bekkur komu saman og svo 7. – 10. bekkur. Eva Kristín Einarsdóttir, nemandi úr 6. bekk spilaði á gítar á fyrri athöfninni en á seinni athöfninni söng Elísa Tan Doro-On en hún spilaði einnig á piano og munnhörpu lagið Piano man eftir Billy Joel. Elísa flutti einnig lagið Allt mitt líf ásamt Ögmundi Ásgeiri Bjarkasyni sem spilaði undir á piano. Þau Elísa og Ögmundur eru bæði nemendur í 10. bekk.


Jón Ragnar Ástþórsson, skólastjóri, flutti ávarp og sagði frá því helsta sem einkennt hefur skólaárið. Jón Ragnar ávarpaði einnig útskriftarárgang skólans og hvatti þau til góðra verka í framtíðinni.


Foreldrar útskriftarnemenda buðu svo nemendum 10. bekkjar og starfsfólki skólans í veglegt kaffisamsæti að skólaslitnum loknum.


Veitt var viðurkenning fyrir Bragðaref sem er samþættingarverkefni í 6. og 7. bekk en einnig voru veittar viðurkenningar fyrir list- og verkgreinar í 7. bekk. Í 8. og 9. bekk voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur. Tveir nemendur 10. bekkjar hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í bóklegum greinum og tveir nemendur í 10. bekk hlutu viðurkenningu fyrir góðan árangur í íþróttum og sundi.
Starfsfólk Gerðaskóla þakkar nemendum, foreldrum og forráðamönnum fyrir samstarfið á liðnu ári, með ósk um áframhaldandi góð og jákvæð samskipti. Við sendum útskriftarárgangi Gerðaskóla árið 2025 innilegar hamingjuóskir með áfangann, megi framtíðin verða björt.

 

Hægt er að skoða myndir frá skólaslitum hér.

Eftirtaldir nemendur hlutu viðurkenningu skólaárið 2024-2025:

Viðurkenning fyrir góðan námsárangur í Bragðaref í 6. -7. bekk:

Eva Kristín Sveinsdóttir

Kvenfélagið Gefn veitti viðurkenningar til nemenda í 7.bekk sem voru að klára sitt síðasta ár í list- og verkgreinum:

Ágúst Ægir Guðmundsson í heimilisfræði

Kristrún Erla Sigurðardóttir í textílmennt

Jóhann Bragi Freysson í smíði

Kristrún Erla Sigurðardóttir í sjónlistum

Viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur í 8. og 9. bekk:

Ásta Margrét Arinbjarnardóttir í 8. bekk

Hera Lind Róbertsdóttir í 9. bekk

Friðgarðsrósin skólaárið 2024 - 2025 í 8. bekk:

Magnús Gunnarson

Ásgarðsrósin skólaárið 2024 - 2025 í 9. og 10. bekk:

Andrian Freyr Henrisson

Maja Wiktoria Kieszkowska

Viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur í 10. bekk:

Bjarni Dagur Jónsson

Hrafnhildur Helga Magnadóttir

Viðurkenningar fyrir góðan árangur í skólaíþróttum og skólasundi í 10. bekk:

Bjarni Dagur Jónsson

Ögmundur Ásgeir Bjarkason