Í Gerðaskóla er símafriður allan skóladaginn. Markmiðið er að skapa góðan náms- og vinnufrið, efla einbeitingu og virkni nemenda og skapa meira rými fyrir samskipti, leik og samveru.
Reglur Gerðaskóla eru í samræmi við áherslur mennta- og barnamálaráðuneytisins um símafrí í grunnskólum og fyrirhugaða reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma. Með innleiðingu á þessum reglum er eldri símasamningur og símareglur ógildar. Reglur um símafrið taka gildi föstudaginn 11. september 2026.
Reglur um síma og snjalltæki
- Nemendur eru hvattir til að skilja síma og önnur persónuleg snjalltæki eftir heima.
- Komi nemandi með síma eða önnur persónuleg snjalltæki í skólann skal vera slökkt á honum eða hann á flugstillingu og geymdur í tösku nemandans allan skóladaginn.
- Sími og önnur persónuleg snjalltæki eiga ekki að vera í vasa nemanda, á borði eða annars staðar þar sem þau eru aðgengileg.
- Símafriður gildir í kennslustundum, frímínútum, matsal og í öðru starfi á skólatíma.
- Símafriður gildir einnig á skólalóð og á leið milli skólans og íþróttamannvirkja þegar sú ferð er hluti af skólastarfi.
- Sömu reglur gilda um heyrnartól, snjallúr og önnur persónuleg snjalltæki sem geta tekið við símtölum, skilaboðum eða tilkynningum.
- Símar og önnur persónuleg snjalltæki sem nemendur koma með í skólann eru á ábyrgð nemenda og foreldra/forráðamanna.
- Undantekningar frá reglunum eru aðeins gerðar vegna sérstakra þarfa nemanda og í samráði við stjórnendur skólans.
Ef reglum um símafrið er ekki fylgt
Fyrsta skref
Nemandi fær áminningu og tækifæri til að ganga frá símanum/tækinu í tösku samkvæmt reglum skólans. Atvik skráð í Mentor.
Endurtekið brot
Ef nemandi brýtur reglurnar aftur skal hann afhenda símann/tækið. Síminn er geymdur á skrifstofu skólans til loka skóladags nemandans og atvikið skráð í Mentor. Nemandi getur sótt símann/tækið að skóladegi loknum.
Ítrekuð brot
Þurfi ítrekað að taka síma eða annað snjalltæki af nemanda eru foreldrar/forráðamenn beðnir um að sækja tækið í skólann.
Við ítrekuð brot er haft samband við foreldra/forráðamenn þar sem farið er yfir stöðuna og fundnar leiðir í sameiningu til að tryggja að reglum um símafrið sé fylgt.
Ef nemandi neitar að afhenda tæki
Ef nemandi neitar að afhenda síma eða annað snjalltæki þegar starfsmaður óskar eftir því er málinu vísað til skólastjórnanda og haft samband við foreldra/forráðamenn.
Samskipti við heimili á skólatíma
Þurfi nemandi að hafa samband heim á skólatíma fær hann leyfi starfsmanns til að hringja hjá ritara. Foreldrar/forráðamenn geta að sama skapi komið áríðandi skilaboðum til barna sinna í gegnum skrifstofu skólans í síma 425-3050.
Sameiginleg ábyrgð
Gott samstarf heimila og skóla er mikilvægur þáttur í því að reglur um símafrið nái tilgangi sínum. Við hvetjum foreldra og forráðamenn til að styðja við reglurnar og ræða við börnin sín um mikilvægi þess að virða símareglur á skólatíma.
Símafriður snýst um að skapa rými fyrir aukinn félagsþroska, nám, samskipti og samveru.