Plokkdagurinn og Dagur jarðar

Á degi jarðar, þann 22. apríl fengum við í Gerðaskóla til okkar góðan gest með fræðslu og hvatningu. Tómas Knútsson frá Bláa hernum hitti nemendur 6. – 10. bekkjar og sagði þeim frá ötulu starfi sínu við hreinsun strandlengjunnar, sérstaklega hér á Reykjanesi. Starf Bláa hersins hófst einmitt með hreinsun Garðskagafjöru fyrir rúmum 30 árum svo það er afar viðeigandi að Gerðaskóli fái Tómas í heimsókn. Tómas hvatti nemendur og starfsfólk til þess að huga vel að umgengni sinni við jörðina og móður náttúru og sýndi okkur ýmislegt sem hefur borið að landi á Rekjanesinu, janfvel um óralangan veg. Hann sagði einnig frá því hvernig hlutum sem Blái herinn hefur fundið í fjörum er skilað aftur inn í hringrásarkerfið þar sem þeir öðlast nýtt líf og hlutverk.

 

Í næstu viku verður umhverfishreinsun Gerðaskóla í tilefni af stóra plokkdeginum þann 26. apríl nk. en þá mun hver bekkur taka ákveðið svæði í nærumhverfinu í fóstur þar sem þau tína rusl og hreinsa til. Við þökkum T‘omasis hjartanlega fyrir komuna og hvetjum nemendur og fjölskyldur þeirra til að taka þátt í plokkdeginum á sunnudaginn og leggja sitt af mörkum við að hreinsa nærumhverfið okkar.

Hægt er að skoða myndir hér.