Óveður

Í fyrramálið, miðvikudaginn 8. janúar, spáir mjög vondu veðri sérstaklega þegar nemendur eiga að mæta í skólann. Við biðjum foreldra að fylgjast vel með veðri, tilkynningum frá Lögreglu og Almannavörnum. Foreldrar eru vinsamlega beðnir um að meta aðstæður og fylgja börnum í skólann.

Þegar veðurspár gefa til kynna að óveður sé í aðsigi á Suðurnesjum fylgjast Lögreglan og Almannavarnir gaumgæfilega með, hafa samstarf við skólana og gefa út viðvaranir til almennings, gerist þess þörf.

Mikilvægt er að foreldrar sjálfir fylgist með veðri og veðurspám og hagi sér í samræmi við aðstæður hverju sinni.

Foreldrar leggja sjálfir mat á hvort fylgja þarf barni í og úr skóla þótt engin tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla þá skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll.