Nemendur í 1. bekk fengu reiðhjólahjálma að gjöf.

Kiwanis og Eimskip komu færandi hendi og gáfu nemendum í 1. bekk hjálma og buff. Til að gjöfin nýtist sem best og skili tilætluðum árangri er mikilvægt að barnið noti hjálminn alltaf þegar það hjólar, leikur sér á línuskautum, hlaupahjóli eða hjólabretti.

Við í 1. bekk þökkum kærlega fyrir okkur. 

Pössum að stilla hjálminn rétt