Lokun skrifstofu í sumar

Skrifstofa skólans er lokuð frá og með 16. júní en opnar aftur 8. ágúst.

Skólasetning verður þriðjudaginn 22. ágúst og byrjar skólinn einnig þann dag.

Nemendur í 1. - 6. bekk mæta kl. 8:15 á sal skólans og nemendur í 7. - 10. bekk kl. 9:00.

Fyrstu bekkingar ásamt foreldrum verða boðaðir í viðtal þann dag.

Við bendum á tölvupóstfang skólans gerdaskoli@gerdaskoli.is og heimasíðu www.gerdaskoli.is ef tilkynna þarf breytingar eða sækja um skólavist.

Starfsmenn Gerðaskóla óska nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars.