Litla upplestrarhátíðin í 4. bekk

Litla upplestrarhátíðin í 4. bekk var haldin á sal skólans þann 29. apríl síðastliðinn. Nemendur lásu þulur, málshætti og ljóð á hátíðinni en þau hafa undirbúið sig vel undanfarnar vikur og æft upplestur bæði í skólanum og heima.
Litla upplestrarhátíðin er mjög góður undirbúningur og æfing í framkomu og upplestri og eru helstu markmiðin m.a. að auka lestrarfærni og efla sjálfstraust.

Gestalesari á hátíðinni var Eva Kristín Einarsdóttir nemandi í 7. bekk en hún keppti sem fulltrúi Gerðaskóla í Stóru upplestrarkepninni sem haldin var fyrr í vetur og hlaut þar 3. Sæti.

Hátíðin tókst afar vel og nemendur stóðu sig öll með prýði en í lok hátíðarinnar flutti 4. bekkur óvænt tónlistaratriði sem þau höfðu undirbúið með umsjónarkennurum sínum. Foreldrum og forráðamönnum var svo boðið uppá köku og kaffi í heimastofu bekkjarins.

Hægt er að skoða myndir hér.