Nemendur í 4. bekk taka þátt í Litlu upplestrarhátíðinni þar sem þau undirbúa og æfa upplestur og framkomu en hátíðin fór fram þann 9. maí síðastliðinn. Litla upplestrarhátíðin er eins og litla systir Stóru upplestrarkeppninnar sem nemendur í 7. bekk taka þátt í um land allt. Hátíðin er góður undirbúningur og æfing í framkomu og upplestri og eru helstu markmiðin m.a. að auka lestrarfærni og efla sjálfstraust. Nemendur sungu m.a. Guttavísur, lásu ljóð og fóru með þulur. Á hátíðinni lásu þau Elianna Rós Viray og Jóhann Bragi Freysson úr 7. bekk ljóð en þau hrepptu 1. og 3. sæti í Stóru upplestrarkeppninni sem haldin var nýlega.
Hægt er að skoða myndir hér.