Innritun nemenda í 1. bekk skólaárið 2026-2027

Innritun er hafin fyrir börn sem eiga að hefja nám í 1. bekk haustið 2026. Umsóknir um skólavist fara nú fram rafrænt í gegnum Nemendagrunn Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og fer skráning fram með rafrænum skilríkjum.

Foreldrar og forráðamenn sækja um skólavist fyrir börn sín í gegnum island.is.

Foreldrum eða forráðamönnum sem ekki hafa rafræn skilríki er bent á að hafa samband við skrifstofu þess grunnskóla sem sótt er um í þar sem veitt er aðstoð við að fylla út og skila umsókn.

Nemendur með lögheimili í Sandgerði sækja um í Sandgerðisskóla og nemendur með lögheimili í Garði sækja um í Gerðaskóla.