Hundrað daga hátíð

Þriðjudaginn 2. febrúar voru börnin í 1. bekk búin að vera 100 daga í skólanum. Þau hafa talið dagana frá skólabyrjun og skráð inn á 100 töflu. Með því æfðu þau sig líka í tugum og einingum. Í tilefni af þessum tímamótum völdu börnin að vera með dótadag og var líf og fjör hjá þeim.