Göngum í takt – foreldrafundir

Í september héldum við Göngum í takt foreldrafundina okkar í Gerðaskóla. Markmið með fundunum er að efla samstarf heimilis og skóla, kynna áherslur komandi skólaárs fyrir foreldrum og bjóða uppá fræðslu um ýmis málefni. Jón Ragnar, skólastjóri opnaði fundina og hvatti foreldra og forráðamenn m.a. til að bjóða sig fram sem bekkjarfulltrúa en samstarf á millli foreldra er gríðarlega mikilvægt og getur haft forvarnargildi t.d. á unglingsárunum. Herdís, sálfræðingur hjá Menntasviði, kynnti svo verkefnið Heillaspor fyrir öllum árgöngum auk þess sem farið var yfir fyrirkomulag í kringum símafrið í Gerðaskóla. Foreldrar og forráðamenn fóru að loknum erindum með umsjónarkennurum sinna barna í heimastofur og fengu kynningu á starfi vetrarins.

Verkefnið Heillaspor (e. Nurture) er heildræn nálgun sem styður við velferð, öryggi og virka þátttöku barna í inngildandi skóla- og frístundastarfi. Með tengslamiðuðum leiðum er skapað öruggt umhverfi þar sem börn fá tækifæri til að þroskast og ná árangri í námi. Verkefnið verður innleitt í allt starf skólans í samstarfi við Menntasvið Suðurnesjabæjar.

Nýlega var samþykkt reglugerð Barna- og menntamálaráðuneytisins um símafrí í grunnskólum og frístundastarfi en Særún, deildarstjóri fagstarfs, kynnti fyrirkomulagið sem unnið verður eftir í Gerðaskóla. Allar nánari upplýsingar um símafrið er að finna á heimasíðu skólans.

Við þökkum öllum sem sáu sér fært að taka þátt í fundunum með okkur kærlega fyrir komuna og góðar umræður á fundunum.

Hægt er að skoða myndir hér.