Gleðifréttir í Gerðaskóla!

Við erum ótrúlega stolt af því að segja frá því að Gerðaskóli hefur formlega verið samþykktur sem UNESCO-skóli!

Til að afhjúpa þessar frábæru fréttir fóru nemendur í skemmtilegan ratleik um skólann. Við hittumst öll á sal og sungum saman lagið Elsku heimur eftir Braga Valdimar Skúlason (úr myndinni Fíusól), en það hefur einmitt verið tilnefnt UNESCO-lag Reykjaness.

Frábær dagur hjá okkur!

Hér er hægt að hlusta á nemendur syngja lagið og hér eru nokkrar myndir frá ratleiknum.