Vetrarfrí og kvennaverkfall

Föstudaginn 20. október og mánudaginn 23. október er vetrarfrí og verður skólinn og frístund lokuð þann dag.

Á fjórða tug samtaka kvenna, hinsegin fólks og launafólks blása til heils dags kvennaverkfalls þann 24. október næstkomandi. Konur og kvár sem það kjósa munu þá leggja niður störf.
Kvennaverkfallið er baráttudagur fyrir jafnrétti á vinnumarkaði og tekur launafólk þátt á eigin forsendum og samkvæmt eigin ákvörðun en þó í samráði við sinn stjórnanda.
Konur og kvár við Gerðaskóla hafa tilkynnt okkur stjórnendum að það ætli að leggja niður störf þennan dag. Við gerum einnig ráð fyrir að einhverjir karlmenn sem eiga ung börn verði frá vinnu þennan dag vegna lokunar á leikskólanum. Skólastarf í Gerðaskóla fellur því niður þriðjudaginn 24. október þar sem við getum ekki sinnt kennslu né gæslu þann dag.