Foreldrafundur

Þriðjudaginn 14. nóvember kl. 17:30 verður foreldrafundur fyrir 1. - 4. bekk. Við byrjum á sal þar sem verða fyrirlestrar um læsi og nýja námsmatið. Eftir fyrirlestrana verður farið í heimastofur bekkjanna. Þar ætlar umsjónarkennari ásamt sérgreinakennara að ræða málefni bekkjarins. Mikilvægt er að allir nemendur eigi fulltrúa á fundinum en fundurinn er eingungis fyrir foreldra/aðstandendur, ekki nemendur.
Við hlökkum til að sjá ykkur.