Dagur íslenskrar tungu

Þann 16. nóvember síðastliðinn var degi íslenskrar tungu fagnað í Gerðaskóla. Nemendur og starfsfólk komu saman á sal skólans þar sem flutt voru frábær skemmtiatriði, söngur, upplestur og leikir. Það voru nemendur í 2., 4. 6., 8. og 10. bekk sem skipulögðu og æfðu atriði á hátíðinni auk þess sem Barnakór Gerðaskóla og Tónlistarskólans í Garði sungu fyrir gesti.

Nemendur í 10. bekk fluttu kynningu á Jónasi Hallgrímssyni en 16. nóvember er fæðingardagur hans.

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk var formlega sett af stað á Degi íslenskrar tungu og afhentu fulltrúar 8. bekkjar lestrarkeflið til 7. bekkjar. Einnig lásu keppendur frá síðustu upplestrarkeppni ljóð á hátíðinni. Það verður spennandi að fylgjast með undirbúningi og æfingum hjá 7. bekk í vetur en Stóra upplestrarkeppnin fer fram í Gerðaskóla í mars mánuði.

Hægt er að skoða fleiri myndir hér.