Bræðingur og Velferðarkennsla valin fyrirmyndarverkefni 2026

Þann 10. júní fór fram hátíðleg athöfn í Byggðasafni Suðurnesjabæjar þar sem veittar voru viðurkenningar fyrir Fyrirmyndarverkefni í skóla- og frístundastarfi Suðurnesjabæjar. Markmið viðburðarins er að vekja athygli á því öfluga og fjölbreytta starfi sem fram fer í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskólum og frístundastarfi sveitarfélagsins. Jafnframt er þeim ætlað að efla nýbreytni, fagmennsku og þróun í starfi með börnum og ungmennum og varpa ljósi á þau fjölbreyttu verkefni sem auðga skóla - og frístundastarf.

Það er sannarlega gleðilegt að tvö verkefni í Gerðaskóla voru valin sem fyrirmyndarverkefni árið 2026. Það eru samþættingarverkefnið Bræðingur á unglingastigi og Velferðarkennsla sem snýst um að bjóða nemendum upp á rólegar kennslustundir sem miða að því að að auka vitund þeirra og velferð.

Í umsögn dómnefndar segir m.a.:

,,Bræðingur hlýtur viðurkenningu fyrir að vera framúrskarandi dæmi um þróun og nýbreytni í kennslu og skipulagi náms. Verkefnið byggir á öflugu samstarfi kennara og samþættingu námsgreina, eflir frumkvæði, gagnrýna hugsun, skipulagshæfni og samstarfsfærni“.

,,Velferðarkennsla Gerðaskóla hlýtur viðurkenningu fyrir metnaðarfulla og heildstæða nálgun að vellíðan og þroska barna. Verkefnið byggir á þeirri sýn að vellíðan, sjálfsþekking og tilfinningalegt jafnvægi séu forsendur náms og farsællar þátttöku í samfélaginu“.

Fyrir áhugsama má finna frekari upplýsingar um samþættingarverkefni í Gerðaskóla á vefsíðunni okkar: Samþætting í Gerðaskóla og hægt er að fylgjast með Velferðarkennslunni á Instagramsíðu Gerðaskóla og Laufgarðs

Gerðaskóli þakkar kærlega fyrir tilnefningar og þann heiður sem skólastarfinu er sýndur með viðurkenningunni. Hjartans hamingjuóskir til starfsfólks og nemenda í Gerðaskóla.