Bergrún Íris

Í október heimsótti Bergrún Íris, rithöfundur og myndskreytir, nemendur í 1. - 4. bekk og las upp úr bókinni Pógo og prumpið sem bjargaði heiminum. Bókin er gefin út af ÖBÍ réttindasamtökum í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Í bókinni kemur geimveran Pógó til jarðarinnar og kynnist fjölbreytileika mannanna í allri sinni mynd. Nemendur voru mjög áhugasamir og góðir áheyrendur. Við þökkum Bergrúnu Írisi og ÖBÍ kærlega fyrir okkur.