Þegar veðurspár gefa til kynna að óveður sé í aðsigi á 
Suðurnesjum fylgjast Lögreglan og Almannavarnir 
gaumgæfilega með, hafa samstarf við skólana og gefa 
út viðvaranir til almennings, gerist þess þörf.
Mikilvægt er að foreldrar sjálfir fylgist með veðri og 
veðurspám og hagi sér í samræmi við aðstæður hverju 
sinni.
Foreldrar leggja sjálfir mat á hvort fylgja þarf barni í og 
úr skóla þótt engin tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. 
Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn 
þeirra sæki skóla þá skulu þeir tilkynna skólanum um 
það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll.
Við slíkar aðstæður eru skólarnir opnir og þar er öruggt 
skjól fyrir börnin