Skólasel Gerðaskóla

Skólasel Gerðaskóla er til húsa í félagsmiðstöðinni í gamla íþróttahúsinu.  Skólaselið er opið frá því skóla lýkur til kl. 16:00 og er ætlað nemendum í 1. - 3. bekk.  Starfsemin hefst í ágúst á sama tíma og skólinn og lýkur daginn fyrir skólaslit.  Tveir starfsmenn sinna börnunum og eru meginmarkmið starfseminnar eftirfarandi:

. að skapa börnunum öruggt umhverfi eftir að skóladegi lýkur
. að veita þeim hlýlega umönnun í heimilislegu umhverfi
. að skapa aðstöðu til leikja, jafnt skipulagðra sem frjálsra leikja
. að bjóða upp á viðfangsefni sem virkja sköpunarþörf barnanna
. að bjóða þeim eftirmiðdagshressingu
. að veita börnunum eðlilega útrás fyrir hreyfiþörf og útiveru

1. Öryggi. Leggja ber áherslu á að búa börnunum öruggt umhverfi. Nákvæmt eftirlit er haft með því að barnið mæti, fari heim á réttum tíma og fari sér ekki að voða meðan á dvöl þess stendur. Á móti eru gerðar þær kröfur til foreldra að sækja þau á réttum tíma og láta vita um frí eða veikindi.
Á leikskólanum eru aðstæður aðrar, fleira starfsfólk og afgirt lóð. Bæði foreldrar og börn þurfa að gera sér grein fyrir þessu og kynna þarf fyrir þeim þær reglur sem nú þarf að fara eftir.
2. Heimilislegt og hlýlegt umhverfi. Miðað við aðstæður í salnum verður reynt að hlúa að skóladagvistinni þannig að umhverfið verði hlýlegt. Eftir að hafa verið allan morguninn í skólanum er nauðsynlegt að börnin geti slakað á frá því skipulagi og verið nokkuð frjáls að velja sér verkefni eða leiki eins og er á heimilum þó innan þeirra marka sem skóladagvistin býður.
3. Leikir. Fyrir þennan aldurshóp, 6-8 ára börn, er leikurinn mjög mikilvægur. Húsnæðið þarf að vera skipulagt þannig að aðstaða sé til mismunandi leikja. Spil, töfl o.fl. eru mikið notuð til innileikja og hlutverkaleikir eru vinsælir og leikir með dúkkur og önnur leikföng. Utan dyra eru boltaleikir eða göngur góður kostur og að leika sér í kastalanum fyrir utan.
4. Sköpunarþörf barnanna. Sköpunarþörfin er börnum í blóð borin. Að vinna að saumum, myndlist og föndri úr ýmsum efnum þroskar hug og hönd og veitir ánægju. Ýmis efniviður til skapandi vinnu á alltaf að vera til staðar fyrir vinnufúsar hendur. Mikilvægt er að kenna góða umgengni og frágang.
5. Síðdegishressing: Börnin hafa þörf fyrir létta næringu um miðjan daginn. Um kl. 15:00 er síðdegishressing.
6. Útivera . Skólalóðin er ágætlega skipulögð með leiki í huga. Þar eru boltavellir og leiktæki og börnin geta leikið sér frjáls í umsjón starfsmanns. Nálægðin við náttúruna gerir gönguferðir og náttúruskoðun að fýsilegum kosti.

Gott foreldrasamstarf er nauðsynlegt í skóladagvist eins og öllu skólastarfi. Innritun fer fram að vori en nánari skráning um óskir foreldra er gerð í skólabyrjun.

Viðburðadagatal

Næstu viðburðir

Könnun