Skólaráð

Samkv. 8. gr grunnskólalaga nr. 91/2008 er skólaráð er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólanefnd, sbr. 6. gr., getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til viðbótar. 

Skólaráð skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn, tveimur fulltrúum kennara ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks í viðkomandi skóla, tveimur fulltrúum nemenda og tveimur fulltrúum foreldra, auk skólastjóra sem stýrir starfi skólaráðs og ber ábyrgð á stofnun þess. Skólaráð velur að auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til að sitja í ráðinu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra. Auk þess skal skólastjóri boða til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags að lágmarki einu sinni á ári.

Einnig má lesa um starfssvið skólaráðs í reglugerð nr. 1157/2008.

Skólaráð skipa eftirtaldir aðilar:  Þorkell Ingimarsson skólastjóri, Guðríður Brynjarsdóttir (fulltr. kennara), Magnús Guðmundsson (fulltr. kennara), Drífa Björnsdóttir (fulltrúi starfsfólks), Herborg Hjálmarsdóttir (fulltr.foreldra), Sóley Björg Gunnarsdóttir (fulltr. foreldra), Bryndís Knútsdóttir (fulltr. grenndarsamfélags), Aron Freyr Róbertsson (fulltr. nemenda) og Þóra Lind Halldórsdóttir (fulltr. nemenda).

 

Fundargerð 20. sept. 2011

Fundargerð 26. sept. 2011

Fundargerð 3. okt. 2011 

Umsögn skólaráðs til ráðuneytisins 

Fundargerð 20. feb. 2012


                                                   

 

                                                                                                          

Viðburðadagatal

Næstu viðburðir

Könnun