Stærðfræðiátak
Í síðastliðinni viku hefur verið stærðfræðiátak í Gerðaskóla. Átakið var með þeim hætti að stærðfræðitímarnir voru brotnir upp með verklegum stærðfræðiverkefnum og aðrar kennslustundir voru með stærðfræðilegu ívafi. Verkefnin voru fjölbreytt og skemmtileg og voru nemendur áhugasamir og duglegir. Á lokadegi átaksins var svo spilað bingó í yngri bekkjum og félagsvist í eldri bekkjum. Í félagsvistinni var spilað á 20 borðum og sýndu nemendur í 7. - 10. bekk alveg einstakan áhuga og kurteisi og var frábært að sjá allan þennan hóp saman kominn í sal skólans og spila saman. Nemendur eiga hrós skilið fyrir skemmtilegt átak.


Til baka
|