Göngudagur og dagur læsis
Löng hefð er fyrir því í Gerðaskóla að einn skóladagurinn í september sé göngudagur. Á miðvikudaginn, þann 8. september munu nemendur og starfsfólk fara í hinar árlegu gönguferðir.
Nemendur í 1.- 3. bekk fara í gönguferð í nágrenni skólans og setjast síðan að hádegisverði um kl. 11:00 en skóladegi þeirra lýkur að honum loknum.
Nemendum í 4.-6 bekk verður ekið inn í Leiru, þaðan ganga þau upp að Prestvörðu og að Árnarétt og síðan í Gerðaskóla. Eftir hádegismat kl. 11:00 lýkur skóladegi þeirra.
Nemendur í 7.-10. bekk fara með rútu að Þorbirni í Grindavík og ganga þeir síðan á fjallið. Að því loknu er nemendum ekið í hádegismat í Gerðaskóla. Að honum loknum eða um kl. 12:00 er skóladegi lokið.
Göngufólk er minnt á að taka með sér nesti, vera klætt samkvæmt veðri, vera á góðum gönguskóm og með góða skapið meðferðis.
Svo skemmtilega vill til að þessi dagur er einnig alþjóðlegur dagur læsis. Oft er talað um að vera læs á náttúruna og þegar göngudagur og dagur læsis fara saman er kjörið tækifæri að kenna nemendum náttúrulæsi. Það samrýmist einkar vel markmiðum skólans um útikennslu en í henni er færist kennslan út fyrir ramma skólastofunnar. Í Aðalnámskrá er litið svo á að útikennsla auðgi og styrki allt nám og mikilvægt sé að skólar samþætti útikennslu við skólanámskrá sína með það m.a. að markmiði að kynna nemendum nánasta umhverfi sitt og efla vitund þeirra og virðingu fyrir því.
Göngudagur Gerðaskóla er vel til þessa fallinn.
.JPG&ext=jpg&w=250&h=167)
Til baka
|