Húsnæði Gerðaskóla og skólabyrjun
Skólahúsnæði Gerðaskóla hefur tekið algjörum stakkaskiptum á undanförnum árum. Smátt og smátt hefur hver breytingin af annarri verið tekin í notkun. Gjörbreyting varð á aðstöðunni í fyrravetur þegar nýi salurinn og nýjar kennslustofur voru teknar í notkun og ekki varð breytingin minni í haust þegar nýjar sérgreinakennslustofur fyrir tónmennt, heimilisfræði, myndmennt og tölvur voru teknar í notkun fyrir utan að starfsmenn fluttu í nýja aðstöðu. Allt er húsnæðið hið glæsilegasta og ótrúlegur munur fyrir alla að starfa við þessar aðstæður.
Bæði börn og fullorðnir hafa notið þessara nýju aðstæðna í ríku mæli. Skólastarfið fer vel af stað, mikil ánægja hefur einkennt það í upphafi skólaársins en einnig annríki við að koma sér fyrir á nýjum stöðum. Verið er að vinna við að koma bókasafninu fyrir og að því loknu verður einnig þar mikil breyting til hins betra.
Vonast er til að friður og starfsánægja muni einkenna skólastarfið í framtíðinni og skólasamfélagið allt fái notið þessa glæsilega húsnæðis Gerðaskóla.
Til baka
|