Upphaf skólastarfs
Skólasetning verður mánudaginn 23. ágúst í Miðgarði, sal skólans sem hér segir:
Kl. 09:00 7.-10. bekkur.
Kl. 9:30 1.-6. bekkur.
Sama dag mæta nemendur í 1. bekk í viðtöl. Til þeirra viðtala verður boðað með bréfi. Skóladegi lýkur hjá öllum árgöngum kl. 13:10.
Foreldrar nemenda í 1.-3. bekk sem eiga eftir að skrá börn sín í skóladagvist eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu skólans sem fyrst. Síminn er: 422-7020 eða netfangið dagnyh@gerdaskoli.is
Skólinn mun sjá um innkaup fyrir 1. til 5. bekk en innkaupalistar fyrir 6.-10. munu verða birtir á heimasíðu skólans fimmtudaginn 19. ágúst. Taka má hins vegar mið af innkaupalistum síðasta árs á heimasíðunni.

Til baka
|