22. maí 2010
Starfskynningar í skólanum

Starfskynningar voru haldnar fyrir 9. og 10. bekk Gerðaskóla þriðjudaginn 18. maí sl.  Skipulagið var með nokkuð breyttu sniði frá því sem verið hefur síðastliðin ár.  Fengnir voru 7 aðilar til að koma í skólann og kynna nám sitt og störf og fékk því hver nemandi góða kynningu á nokkrum ólíkum starfsgreinum.  Gestirnir sögðu frá því við hvað þeir starfa og hver séu helstu verkefni starfsins.  Þeir sögðu einnig frá menntun sinni og hvaða námsgreinar er gott að leggja áherslu á fyrir viðkomandi starf. 

Kristján Geirsson hóf leikinn með góðri kynningu á starfi lögreglumannsins.  Hann talaði opinskátt um starfið og nemendur fengu að kynnast kostum þess og göllum.  Síðan kom Ágústa Ásgeirsdóttir útibústjóri í Sparisjóðnum í Garðinum og sagði frá helstu störfum innan bankans.   Ólafur Ingi Jónsson frá Brunavörnum Suðurnesja sagið okkur svo frá starfi slökkviliðsmannsins og Bragi Guðmundsson gaf sér smá tíma frá byggingu skólans til að segja okkur frá sínu starfi sem byggingaverktaki.

Eftir frímínútur fengum við svo Pál Svavar Pálsson í heimsókn.  Páll er tæknifræðingur og starfar á Verkfræðistofu Suðurnesja og einnig sem byggingafulltrú Garðs.  Hann sagði frá sínu starfi og einnig fleiri störfum sem unnin eru á verkfræðistofum og tengjast hönnun og mannvirkjagerð.

Næstur var Axel Jónsson sem sagði okkur frá starfi matreiðslumannsins af mikilli ástríðu og gaf okkur uppskriftina af karrísósunni sem við fáum með matnum frá Skólamat.

Bergdís Sigurðardóttir rak svo lestina og sagði frá námi sínu og starfi sem grafískur hönnuður.  Hún fjallaði um ólíkar hliðar starfsins og einnig um námsferil sinn, þar sem hún lagði áherslu á hvernig námsáætlanir geti breyst á miðri leið og að nemendur velji sér nám og störf sem þeir hafa mikinn áhuga á.



Til baka

Viðburðadagatal

Næstu viðburðir

Könnun