12. maí 2010
List án landamæra - Fuglarnir í Garðinum

Sýningin Fuglarnir í Garðinum var opnuð 30. apríl s.l. í stigaganginum við bæjarskrifstofuna.  Laufey Erlendsdóttir, forseti bæjarstjórnar opnaði sýninguna, sagði frá List án landamæra og kynnti atriðin á opuninni.  Tónlistaratriði voru frá Tónlistarskólanum, leikskólabörn sungu og byrjuðu að skapa fugl sem verður að mótast fram eftir maímánuði.  Þátttakendur í List án landamæra í Garðinum eru:  Heiðarholt, Auðarstofa, Gerðaskóli, Tónlistarskóli Garðs og Gefnarborg.  Í myndasafninu má sjá nokkrar myndir frá opuninni og verkefninu.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 



Til baka

Viðburðadagatal

Næstu viðburðir

Könnun