Bókasafn
Bókasafnið í Garði
Nýtt og glæsilegt bókasafn var formlega opnað í Garðinum 27. október 2010. Safnið er til húsa í Gerðaskóla og snýr aðalinngangur þess að Garðbraut.
Opnunartími:
Skólabókasafnið er opið á skólatíma. Mánudaga - föstudaga, frá kl. 9.00 - 11.50.
Almenningsbókasafnið er opið mánudaga - fimmtudaga, frá kl. 15.00 - 18.00.
Sími: 422-7420
Netfang: bokasafn@gerdaskoli.is
Safnið er á tveimur hæðum og býr yfir fjölbreyttum og góðum safnkosti. Á neðri hæðinni er að finna m.a. skáldsögur, ævisögur, blöð og tímarit. Þar er notalegt barnahorn með úrvali hnokkabóka fyrir yngstu börnin. Á neðri hæðinni eru einnig nettengdar tölvur sem gestum safnsins gefst kostur á að kaupa sér aðgang að.
Á efri hæðinni er úrval fræðibóka auk barna og unglingabóka. Þar er góð aðstaða fyrir námsmenn sem vilja nýta sér fræðibækurnar og vinna verkefni sín í ró og næði. Gert er ráð fyrir að námsmenn geti notað eigin fartölvur við vinnu sína.
Skólabókasafnið er einnig á efri hæðinni og hafa nemendur Gerðaskóla verið duglegir að koma á safnið á skólatíma.
Allur safnkostur bókasafnsins er skráður í landskerfi bókasafna, Gegni, sem er bókasafnskerfi sem hýsir samskrá íslenskra bókasafna. www.gegnir.is Á safninu er ein leitartölva fyrir Gegni, þar er hægt að skoða skráðar bækur sem bókasöfnin búa yfir.
Rekstur kerfisins er í höndum Landskerfis bókasafna hf. Þetta kerfi veitir aðgang að upplýsingum um safnkost flestra bókasafna landsins, t.d. háskólasafna, almenningssafna, sérfræðisafna og skólasafna.
Bókasafnið í Garði er í nánu samstarfi við bókasöfnin í Reykjanesbæ, Grindavík, Vogum og Sandgerði og hafa þessi söfn gert með sér samstarfssamning er varðar bókasafnskerfið Gegni. Lánþegi bóka getur greitt árgjald og fengið skírteini í einhverjum þessara safna og mun það gilda í öllum söfnunum fimm. Skírteininu á að framvísa við útlán og skil á safngögnum. Lánþegi á þess einnig kost, að skila bókum á hverju þessara safna sem er og sjá bókaverðir um að skila þeim í rétt safn.
Útlánsreglur:
Árgjald er 1.135 krónur. Eldri borgarar eru gjaldfrjálsir við 67 ára aldur, börn, öryrkjar og atvinnuleitendur hafa frítt gjald en þurfa að greiða dagsektir fyrir umfram leigutíma.
Hægt er að fá allt að 6 - 8 bækur að láni í einu. Lánstími eldri bóka er 30 dagar en nýjar bækur eru lánaðar út í 14 daga í senn. Sekt fyrir hvern dag umfram leigutíma er 10 krónur fyrir hverja bók. Framlengja má lánstíma bóka með því að koma á safnið, hringja eða nýta gegnir.is þar sem m.a. er hægt að endurnýja útlán og taka frá efni.
Starfsmenn safnsins eru: Kolbrún Þórlindsdóttir
Jóhanna A. Kjartansdóttir
Verið hjartanlega velkomin á Bókasafnið í Garði